Lúmskar slysagildrur á torgi Hörpu

Hjólamenn taka ekki allir eftir flottu vatnslínunum við Hörpu og …
Hjólamenn taka ekki allir eftir flottu vatnslínunum við Hörpu og stýra hjólunum ofan í þær. mbl.is/Kristinn

Hjólreiðamenn kvarta margir sáran undan torginu fyrir framan tónlistarhúsið Hörpu. Telja þeir að um slysagildru sé að ræða.

Fjölmörg dæmi eru um að fólk hafi sprengt dekk á ferð um torgið vegna vatnsrennu sem er á torginu. Þá hafa a.m.k. tveir hjólreiðamenn beinbrotnað við að detta á torginu.

Viktor Þór Sigurðsson hjá hjólaversluninni Tri segir að hjólreiðafólk hafi leitað til verslunarinnar í um tug tilvika vegna skemmds dekks eftir að hafa hjólað um torgið. „Fólk tekur ekki eftir þessum vatnslínum sem settar eru í torgið og lendir skyndilega ofan í þeim,“ segir Viktor og bætir við að torgið sé enn hættulegra hjólreiðafólki að vetrarlagi þegar snjór er yfir því, að því er segir í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert