37,6% fleiri vegabréf gefin út í mars

Í mars 2013 voru gefin út 5.536 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 4.024 vegabréf í mars 2012. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 37,6 % milli ára, segir í frétt frá Þjóðskrá Íslands.

Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Vakin er athygli á því að frá 1.mars 2013 var gildistími vegabréfa lengdur úr fimm árum í tíu ár.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert