Festu bíl á ófærri Breiðdalsheiði

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Björgunarsveitin Hérað er nú á leið á Breiðdalsheiði til að aðstoða erlenda ferðamenn sem þar festu bíl sinn í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum væsir ekki um fólkið í bílnum og er þess að vænta að björgunarsveitarmennirnir nái til þeirra innan tíðar.

Vegurinn um Breiðdalsheiði er ófær og fólki er eindregið ráðið frá því að fara þar um.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert