Hverfisgata og Frakkastígur taka stakkaskiptum

Á Hverfisgötu, milli Lækjargötu og Snorrabrautar, verða umferðarljós fjarlægð og …
Á Hverfisgötu, milli Lækjargötu og Snorrabrautar, verða umferðarljós fjarlægð og beygjuakreinar lagðar af. mbl.is/Einar Falur

Unnið verður að miklum endurbótum á Hverfisgötu, Frakkastíg og Klapparstíg í sumar. Hjólastígar verða lagðir, gangstéttar endurnýjaðar og hitalögnum komið fyrir. Reykjavíkurborg segir að Hverfisgata og Frakkastígur muni taka stakkaskiptum.

Reykjavíkurborg hefur boðað til kynningarfundar um framkvæmdirnar í Tjarnarbíói miðvikudaginn 15. maí kl. 17.15.

Í tilkynningunni segir, að göturnar verði opnar fyrir umferð gangandi og hjólandi allan framkvæmdatímann. Fyrst verði unnið í akbrautinni og á meðan sé fært um gangstéttarnar og þegar akbrautin hafi verið malbikuð verði hún opin gangandi og hjólandi. Meðan unnið sé að endurnýjun gangstétta verði göngubrúm komið fyrir eftir þörfum til að halda opnu aðgengi að húsum. 

„Umferð bíla verður beint um hjáleiðir og til að raska þeirri umferð sem minnst er framkvæmdunum á Hverfisgötu skipt í tvo áfanga.   Vinna hefst í júlí á Frakkastíg og á Hverfisgötu frá Vitastíg niður að Vatnsstíg, en frá Vatnsstíg að Klapparstíg ekki fyrr en 26. ágúst. Strætó verður á framkvæmdatíma beint um Sæbraut og verða biðskýli sett upp þar til bráðabirgða.“

Þá segir að framkvæmdirnar séu löngu orðnar tímabærar og Hverfisgata og Frakkastígur taki stakkaskiptum í sumar: 

  • Nýtt yfirborð götu og gangstétta.
  • Snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð gatnamót.
  • Lagnir sem komnar eru á tíma verða endurnýjaðar í samstarfi við veitufyrirtækin Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveituna og Mílu.
  • Gatnamót verða steinlögð og upphækkuð.
  • Götutré verða gróðursett.
  • Hjólareinar verða beggja vegna götu.
  • Öryggi hjólandi, gangandi og akandi vegfarenda verður bætt.
  • Strætisvagnar sem fara um Hverfisgötu munu stöðva í götunni og hjólandi vegfarendur fara aftur fyrir strætóskýli.
  • Hámarkshraði umferðar verður áfram 30 km/klst.
  • Á Hverfisgötu, milli Lækjargötu og Snorrabrautar, verða umferðarljós fjarlægð og beygjuakreinar lagðar af.
  • Á Hverfisgötu verða hjólastígar malbikaðir, einnig yfir gatnamót.
  • Á Frakkastíg verður malbikuð hjólarein vestan megin í götu, en hjólavísar í götu austan megin.

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert