„Hvaða gögnum eru þeir að safna?“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fundi sem fram fór í Alþingishúsinu í gær. mbl.is/Kristinn

„Ég hef mikla samúð og skilning á því að menn verða að fá tíma til að vinna verk, tíma til að skrafa. En tæp vika er nokkuð langur tími án þess að nokkur vísbending sé um hvort vænta megi árangurs af spjallinu,“ skrifar Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar.

Valgerður segir í pistli sem hún skrifar á Eyjunni, að formennirnir hafi setið að skrafi í tæpa viku og eftir því sem best verður skilið séu þeir að safna gögnum. „Mér finnst að fréttamenn ættu að finna út fyrir okkur hvaða gögnum þeir eru að safna,“ segir hún.

„Varla eru þeir að safna upplýsingum um ríkissjóð. Fyrir kosningar lofaði annar þeirra að lækka skatta. Varla hefur hann gert það án þess að vita um stöðu ríkissjóðs. Varla hefur hann gert það án þess að gera sér grein fyrir að ríkið greiðir á hverju ári 90 milljarða í vaxtagreiðslur.

Getur verið að þeir séu að safna gögnum um skuldamál heimilanna ? Fyrir kosningar lofaði annar þeirra að færa skuldir heimilanna niður um 300 milljarða eða þar um bil. Getur verið að hann hafi gert það án þess að vita hvernig ? Getur verið að hann hafi gert það án þess að kunna galdraformúluna?“

Valgerður segir að sér finnist það líka sérkennilegt að formennirnir sitji einir á spjalli.

„Oddvitaræði eða foringjaræði hefur einkennt stjórnmál hér að landi undanfarna áratugi. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis er felldur áfellisdómur yfir þeim vinnubrögðum.

Ef spjallið ber árangur eru líkur á að 36 alþingismönnum verði boðið að borðinu í næstu viku. Munu þeir þá geta lagt eitthvað til málanna eða verða formennirnir búnir að bindast fastmælum um hvernig kaupin eiga að gerast á eyrinni,“ segir Valgerður.

Valgerður Bjarnadóttir og Bjarni Benediktsson í þingsal.
Valgerður Bjarnadóttir og Bjarni Benediktsson í þingsal. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert