Hjóla prúðbúin um miðbæinn

Prúðbúnir hjólreiðamenn í fyrra.
Prúðbúnir hjólreiðamenn í fyrra.

Tweed Ride Reykjavík fer fram í annað sinn þann 1. júní nk. en tilgangurinn er að hittast og njóta þess að hjóla saman um miðbæ Reykjavíkur - í fötum í anda 5. og 6. áratugar síðustu aldar.

Dagskráin hefst kl. 14 en þá er mæting hjá Hallgrímskirkju. Eftir hópmyndatöku verður hjólað um miðbæinn og endað á KEX hosteli þar sem veitt verða verðlaun fyrir best klædda herramanninn, best klæddu dömuna og fallegasta hjólið.

Sjötíu manns tóku þátt í Tweed Ride Reykjavík í fyrra og að sögn skipuleggjenda tókst einstaklega vel til. Hægt er að skrá sig hér.

Sigurvegarar 2012.
Sigurvegarar 2012.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert