Lýst eftir Birgittu Sif

Birgitta Sif er 14 ára gömul.
Birgitta Sif er 14 ára gömul.

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Birgittu Sif Gunnarsdóttur til heimilis að Sunnubraut 13, Reykjanesbæ. Síðast er vitað um ferðir Birgittu Sifjar, sem er 14 ára gömul, um kl. 21:30 í gærkvöldi og er talið að hún sé í Reykjanesbæ.

Birgitta Sif er 160 cm á hæð, um 60 kíló, með axlarsítt hár og er rökuð hægra megin.  Hún
var klædd í svarta úlpu með loðkraga, í svörtum buxum og í svörtum Converse-strigaskó.

Þeir sem verða varir við Birgittu Sif eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við
lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.

Uppfært: Birgitta Sif fannst skömmu eftir að lýst var eftir henni og er komin heim til sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert