Sigmundur Davíð fékk lyklana

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fékk í dag lyklana að forsætisráðuneytinu, sem er í Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu, afhenta frá Jóhönnu Sigurðardóttur, forvera sínum í starfi. 

Áður en Sigmundur Davíð tók við lyklunum heilsaði hann upp á starfsfólk Stjórnarráðsins.

Jóhanna afhendi Sigmundi Davíð við þetta tilefni bók um jöfnuð í samfélaginu og sagði að þegar hún og hennar ríkisstjórn hefði tekið við hefði ríkt mikill ójöfnuður í íslensku samfélagi en að nú væri sú staða ekki lengur. Að því loknu óskaði hún honum velfarnaðar í starfi og Sigmundur Davíð þakkaði henni fyrir þeirra samstarf.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tekur við lyklunum að Stjórnarráðshúsinu úr hendi …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tekur við lyklunum að Stjórnarráðshúsinu úr hendi Jóhönnu Sigurðardóttur. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert