Margir vilja láta mæla gildi sín

Fjölmargir hafa lagt leið sína í SÍBS-húsið til að láta …
Fjölmargir hafa lagt leið sína í SÍBS-húsið til að láta mæla hjá sér blóðþrýsting og önnur gildi. mbl.is/Kristinn

Segja má að fullt sé út úr dyrum í SÍBS-húsinu í Síðumúla þar sem Hjartaheill býður í dag ókeypis mælingar á blóðþrýstingi og öðrum gildum. Sökum þess er nokkur bið eftir mælingum en létt er yfir fólki, að sögn fréttaritara mbl.is á staðnum. Áfram verður boðið upp á mælingar á morgun.

Hjartaheill og SÍBS bjóða öllum þeim sem ekki þekkja gildin sín að koma í ókeypis mælingu á blóðþrýstingi, blóðsykri, blóðfitu og súrefnismettun í SÍBS húsinu Síðumúla 6. Hjúkrunarfræðinemar í Háskóla Íslands munu framkvæma mælingarnar og gefa vinnu sína báða dagana.

 „Hjarta og æðasjúkdómar eru ein algengasta orsök dauðsfalla og ótímabærs heilsubrests á vesturlöndum“ segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS á vefsvæði Hjartaheilla og bætir við. „Lífstílssjúkdómar eru þegar orðnir heilsufarsvandi númer eitt. En þeir eiga það sameiginlegt að þá má að hluta til fyrirbyggja með hollu mataræði, hreyfingu og öðrum lífsstílsbreytingum. Ég hvet alla sem eru á eða komnir að miðjum aldri til þess að koma og fá að vita hver staðan er hjá þeim. Þetta er ekki eitthvað sem er gott að vita, það getur beinlínis verið lífsnauðsynlegt.“

Opið er frá kl. 11 – 15 laugardag og sunnudag.

Allar nánari upplýsingar má finna á sibs.is og á hjartaheill.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert