Svanhildur aðstoðarmaður Bjarna

Svanhildur Hólm Valsdóttir.
Svanhildur Hólm Valsdóttir. mbl.is/G.Rúnar

Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.

Svanhildur var ráðin í stöðu aðstoðarmanns Bjarna sem formanns Sjálfstæðisflokksins í september 2012. Frá 2009-2012 var hún framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Svanhildur er lögfræðingur að mennt og starfaði um langt árabil við fjölmiðla, segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu í dag. 

Frétt mbl.is: Sex ekki komnir með aðstoðarmenn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert