Önnur skriða í Köldukinn

Skriðan sem féll í gær var um 150 metra breið …
Skriðan sem féll í gær var um 150 metra breið og um kílómetri á lengd. Sú sem féll í morgun var mun minni. mynd/Elvar Viðarsson

Önnur aurskriða féll í Köldukinn í morgun. Sú var mun minni en sú sem féll í gær. Skriðan í morgun lokaði ekki veginum en Vegagerðin vinnur að því að hreinsa skurði og veita vatni af veginum.

„Þetta er miklu minna í sniðum en í gær,“ segir Gunnar Bóasson, verkstjóri Vegagerðarinnar á Húsavík. Hann segir skriðuna ekki hafa náð inn á veginn en hins vegar hafi hún stíflað skurð og nú sé verið að hreinsa úr honum til að veita vatni af veginum.

Þurrt er á svæðinu en Gunnar segir mikinn snjó uppi í fjallinu. Hann sé nú að bráðna með þessum afleiðingum.

Skriðan í morgun féll um 10 metra norðan við húsin á Ystafelli.

Frétt mbl.is: Aurskriða þeyttist yfir veginn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert