Ítalir koma til loftrýmisgæslu

AFP

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný mánudaginn 10. júní með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu um 150 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með sex F-2000-orrustuþotur, B767-eldsneytisvél og C130-birgðaflutningavél. Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og hugsanlega Egilsstöðum 12.-14. júní.

Þetta kemur fram í frétt á vef Landhelgisgæslunnar.

Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og er ráðgert að verkefnið verði framkvæmt með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru ljúki því í byrjun júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert