Andlát: Hermann Gunnarsson

Hermann Gunnarsson.
Hermann Gunnarsson. mbl.is/Sigurgeir

Hermann Gunnarsson fjölmiðlamaður lést í dag, 66 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur í sumarleyfi í Taílandi, en banamein hans var hjartaáfall.

Hermann var fæddur í Reykjavík 9. desember 1946. Foreldrar hans voru Björg Sigríður Hermannsdóttir og Gunnar Gíslason vélstjóri.

Hermann átti glæstan íþróttaferil en hann var einn af fremstu knattspyrnumönnum landsins á sjöunda og áttunda áratugnum.

Þá starfaði Hermann lengi á fjölmiðlum, en um árabil starfaði hann sem íþróttafréttamaður á Ríkisútvarpinu og þá stjórnaði hann eigin sjónvarpsþætti, Á tali hjá Hemma Gunn, sem var vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins í mörg ár. Síðar stjórnaði hann sjónvarps- og útvarpsþáttum á Stöð 2 og Bylgjunni. Hann lét af störfum þar í apríl sl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert