Fagna tillögu að aðalskipulagi

Gísli Marteinn Baldursson
Gísli Marteinn Baldursson Ómar Óskarsson

Þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að drög liggi fyrir að aðalskipulagi Reykjavíkurborgar í nýrri bókun. Fram kom í gær að Júlíus Vífill, Helgason og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúar úr Sjálfstæðisflokki hafi setið hjá og ekki stutt tillögu að nýju aðalskipulagi. Það gera hins vegar þau Gísli Marteinn Baldursson, Þorbjörg Vigfúsdóttir og Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks.

Þétting byggðar

Í bókun þremenninganna kemur fram að þau telji mjög hafa verið vandað til skipulagsins, lengst af undir forystu Sjálfstæðisflokks.

Í henni segir meðal annars:

„Þéttari byggð er lykilþáttur. Með þéttingu byggðar verður hægt að nýta betur land og fjárfestingar í gatna- og veitukerfum auk þjónustu. Einnig mun samgöngukostnaður borgarbúa lækka þar sem vegalengdir milli vinnu, þjónustu og heimila styttast. Draga mun úr neikvæðum umhverfisáhrifum svo sem mengun. Betri forsendur verða fyrir verslun og þjónustu í hverfunum og almenningssamgöngur og aðrir vistvænir ferðamátar eflast. Með skipulaginu er einnig verið að mæta eftirspurn eftir fleiri íbúðum miðsvæðis."

Flugvöllinn á brott

 Í bókuninni er sérstaklega tekið fram að ánægja sé með að fyrirhugaða uppbyggingu í Vatnsmýrinni og að þar eigi að vera blönduð byggð íbúða, háskóla og atvinnustarfsemi, en ekki flugvöllur:

„Úttektir hlutlausra aðila sýna fram á að hagræn áhrif af því að nýta Vatnsmýrina undir blandaða byggð og finna flugvellinum nýjan stað eru of mikil til að horft sé framhjá þeim. Í aðalskipulagsdrögunum sem fyrir liggja hefur ekkert breyst varðandi flugvallarmálið frá fyrra skipulagi enda samráð ríkis og borgar engan árangur borið. Lykilatriði er að ríki og borg hefji markvissa vinnu málsins þegar í stað og setji fram verkefnaáætlun um tímaramma og staðsetningarkosti flugvallar út frá skipulagsóskum borgarinnar. Borgin á að okkar mati að ganga samningsfús og lausnamiðuð til þeirra viðræðna þar sem meðal annars dagsetningar á brottflutningi flugvallarins geta verið undir. Ljóst er að einnig opnast tækifæri til að vinna enn betur að framtíðarstaðsetningu flugvallar, og rýna betur staðsetningar eins og Hvassahraun, Löngusker, Bessastaðanes og fleiri, þegar svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verður endurskoðað, en sú vinna hefst að lokinni aðalskipulagsvinnunni," segir í bókuninni.

Aðalskipulag fer nú til umsagnar borgarbúa, hagsmunaaðila sem og annarra sem láta sig málið varða áður en lokatillaga verður sett fram.

„Það er okkar trú að í meginatriðum sé sú stefna sem dregin er hér upp heillaskref fyrir framtíð Reykjavíkur. Aðalskipulag horfir til langrar framtíðar og við teljum að lífsgæði borgarbúa aukist með þeim skrefum sem stigin eru í þessum drögum,“ segir í bókuninni.

Sjá einnig: Styðja ekki tillöguna

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Kristinn Ingvarsson
Áslaug Friðriksdóttir.
Áslaug Friðriksdóttir. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert