Vélbáturinn Blátindur VE 21 verður lagfærður og honum komið fyrir á Skanssvæðinu í Vestmannaeyjum, að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar.
Áhugamannafélag um varðveislu Blátinds lét gera bátinn upp og afhenti hann menningarmálanefnd Vestmannaeyja til varðveislu á sjómannadag 2001. Báturinn var á floti en síðan tekinn upp og hefur hann staðið á þurru í Vestmannaeyjum í tæp tvö ár og látið talsvert á sjá.
Arnar sagði að ákveðið hefði verið að koma bátnum fyrir í krikanum innst við syðri hafnargarðinn, þar sem flæðir að, fyrir næsta haust. Stefnt er að því að fyrir næsta vor verði búið að ganga þannig frá að fólk komist auðveldlega um borð.