Braut rúður við Stjórnarráðið

Við Stjórnarráðshúsið í Lækjargötu.
Við Stjórnarráðshúsið í Lækjargötu.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning klukkan hálfátta í gærkvöld um rúðubrot í bíl við Stjórnarráðið í Lækjargötu. Þegar lögregla kom á vettvang var skemmdarvargurinn enn á staðnum.

Að sögn lögreglu virðist ölvunarástand hafa haft eitthvað að segja um gjörðir hans og skemmdarfýsn. Maðurinn veitti mótspyrnu við handtöku en var yfirbugaður af lögreglu.

Hann gistir nú í fangageymslum lögreglu, þar til hægt verður að yfirheyra hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert