Hleypt inn í hollum í Ríkið

Menn vættu kverkarnar á Akureyri í dag.
Menn vættu kverkarnar á Akureyri í dag. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Mikill fjöldi fólks er staddur á Akureyri um þessar mundir, en þar eru bæði Bíladagar þessa helgina og útskriftir frá Háskólanum á Akureyri og Menntaskólanum á Akureyri. Samferða útskriftunum flykkjast júbilantar í bæinn til að fagna útskriftarafmælum.

Veðurguðirnir taka greinilega þátt í gleðinni og sleikja menn sólina um allan bæ. Svo mikill fjöldi fólks var í bænum að fullt var út úr dyrum í Vínbúð ÁTVR. „Þetta er kannski 50% aukning miðað við venjulega helgi,“ segir Einar Pálsson, aðstoðarverslunarstjóri ÁTVR á Akureyri. „Við þurftum að hleypa inn í hollum hluta dags bæði í gær og í dag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert