Sigmundur fundar með Reinfeldt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, á fund með Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, á morgun, 19. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Svíar gegna þetta árið formennsku í norrænu ráðherranefndinni, en Ísland tekur við því hlutverki um áramót. Svíar hafa einnig nýlega lokið tveggja ára formennsku í Norðurskautsráðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert