Fyrsti laxinn á land í Elliðaánum

Ólafur Ólafsson, Reykvíkingur ársins 2013, veiðir fyrsta laxinn. Ólafur rennir …
Ólafur Ólafsson, Reykvíkingur ársins 2013, veiðir fyrsta laxinn. Ólafur rennir með aðstoð Ásgeirs Heiðars. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Reykvíkingur ársins, Ólafur Ólafsson formaður íþróttafélagsins Aspar, landaði fyrsta laxi sumarsins úr Elliðaánum rúmlega sjö í morgun. Ólafur renndi fyrir laxi í Sjávarfossi, með aðstoð Ásgeirs Heiðars leiðsögumanns,  klukkan 7:03 og einungis tveimur mínútum síðar var vænn lax á.

Laxinn var veiddur á maðk en Ólafur lenti í nokkrum barningi með laxinn því fiskurinn tók á rás niður ána og kom á land í hylnum fyrir neðan Sjávarfoss.

Jón Gnarr, borgarstjóri, tilkynnti um valið á Ólafi sem Reykvíking ársins við opnun Elliðaánna í morgun. Hann sagði að Ólafur hlyti nafnbótina fyrir óeigingjarnt starf í þágu fatlaðra og þroskahamlaða um langt árabil.

Íþróttafélagið Ösp var stofnað 18. maí, 1980 af foreldra- og kennarafélagi Öskjuhlíðarskóla, með stuðningi frá Íþróttasambandi Fatlaðra.

Markmið íþróttafélagsins Aspar er að standa fyrir íþróttaæfingum hjá félögunum, með sem fjölbreyttustum hætti, þeim til heilsubótar og ánægju og þátttöku í íþróttamótum, þar sem hæfni hvers og eins nýtur sín sem best.

Laxa að stökkva í Sjávarfossinn í Elliðaánum
Laxa að stökkva í Sjávarfossinn í Elliðaánum mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Ólafur Ólafsson, Reykvíkingur ársins og Jón Gnarr borgarstjóri.
Ólafur Ólafsson, Reykvíkingur ársins og Jón Gnarr borgarstjóri. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Feðgarnir, Jón Gnarr og Jón Gnarr yngri. En Jón Gnarr …
Feðgarnir, Jón Gnarr og Jón Gnarr yngri. En Jón Gnarr yngri landaði laxi með aðstoð Ásgeirs Heiðars og föður síns. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Björn S. Blöndal aðstoðarmaður borgarstjóra, fór jafn fimlega með stöng …
Björn S. Blöndal aðstoðarmaður borgarstjóra, fór jafn fimlega með stöng og bassann í Ham, og landaði maríulaxi. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Björn S. Blöndal aðstoðarmaður borgarstjóra beit síðan af veiðiuggann, samkvæmt …
Björn S. Blöndal aðstoðarmaður borgarstjóra beit síðan af veiðiuggann, samkvæmt hefð. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Dagur B. Eggertsson landaði þriðja laxi sumarsins úr Sjávarfossi.
Dagur B. Eggertsson landaði þriðja laxi sumarsins úr Sjávarfossi. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur fékk tvo laxa á Breiðunni.
Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur fékk tvo laxa á Breiðunni. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Laxveiði í Elliðaánum.
Laxveiði í Elliðaánum. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
Laxveiði hefst í Elliðaánum 20. júní 2013.
Laxveiði hefst í Elliðaánum 20. júní 2013. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert