Börn veittust að lögreglumönnum

Lögreglumenn kölluðu eftir liðsauka til að stöðva för 13 ára ökumanns á númerslausu léttu bifhjóli sem sinnti ekki stöðvunarmerkjum um miðnætti. Ítrekað var reynt að stöðva akstur hjólsins, m.a. með því að leggja lögreglubifreiðunum þannig að erfitt yrði að komast framhjá. Það dugði ekki til.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að laust fyrir miðnætti í gærkvöldi hafi lögreglan veitt eftirtekt númerslausu léttu bifhjóli sem ekið var eftir gangstétt á Krókhálsi.

Farþegi losaði sig við tösku

„Á hjólinu voru ökumaður og farþegi. Lögreglumenn hugðust ræða við ökumann hjólsins en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum og hélt áfram akstri. Farþegi á hjólinu losaði  sig við tösku sem reyndist innihalda fartölvu, síma o.fl. og ökumaður hélt akstrinum áfram,“ segir lögreglan í tilkynningu.

Létu ófriðlega og neituðu að segja á sér deili

„Nærstaddar lögreglubifreiðar voru kallaðar til þar sem fullsýnt þótti að ökumaðurinn myndi ekki stöðva aksturinn og ítrekað var reynt að stöðva akstur hjólsins m.a. með því að leggja lögreglubifreiðunum þannig að erfitt yrði að komast framhjá þeim en það dugði ekki til. Hjólinu var að lokum ekið utan í ljósastaur og við það féllu ökumaður og farþegi af því. Í ljós kom að þarna voru á ferð tvær stúlkur.  Þær létu ófriðlega og veittust að lögreglumönnunum og neituðu að segja á sér deili en síðar kom í ljós að þær voru fæddar 1999,“ segir ennfremur.

Þá segir, að stúlkurnar hafi sloppið ómeiddar en til öryggis voru þær fluttar til skoðunar á slysadeild, þangað sem foreldar þeirra sóttu þær.

Réttindalausar féllu af bifjóli

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert