Batnandi orðspor íslensks makríls

Vænn makríll.
Vænn makríll. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

Orðspor íslensks makríls hefur farið mjög batnandi, frystur íslenskur makríll er að verða gjaldgengur á öllum mörkuðum og nýir markaðir í sjónmáli um þessar mundir. Síldar- og makrílvertíðin fer nú að hefjast fyrir alvöru.

Á vefsvæði Síldarvinnslunnar er fjallað um markaðshorfur. Þar segir að horfur á helstu mörkuðum fyrir frystan makríl séu tiltölulega góðar. Mikilvægustu markaðirnir fyrir frystan makríl hafa verið Austur-Evrópa og Afríka. Í Austur-Evrópu eru litlar birgðir til staðar og töluverð eftirspurn og útlitið þar því býsna gott. Í Afríku er útlitið svipað og í fyrra og því góðar horfur á sölu þangað.

„Staðreyndin er sú að orðspor íslensks makríls hefur farið mjög batnandi. Meðhöndlun á hráefninu hefur breyst mikið til batnaðar og markaðsþekking að verða betri þannig að Íslendingar geta í síauknum mæli boðið góða vöru á hverjum markaði fyrir sig. Segja má að frystur íslenskur makríll sé að verða gjaldgengur á öllum mörkuðum og reyndar eru nýir markaðir í sjónmáli um þessar mundir,“ segir á vef Síldarvinnslunnar.

Hins vegar gegnir öðru máli um síldina. „Verð á frystri síld hefur verið hátt á mörkuðum upp á síðkastið en flest bendir til að það muni nú lækka verulega. Miklar síldarbirgðir eru fyrirliggjandi í Noregi og hefur það eðlilega áhrif á markaðsverðið. Annars er ekki mikill sölutími síldarafurða um þetta leyti árs og því eiga málin hvað síldina varðar eftir að skýrast á næstunni.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert