Fjárfesting mun aukast um 14%

Gert er ráð fyrir að einkaneysla taki vel við sér …
Gert er ráð fyrir að einkaneysla taki vel við sér á næsta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gert er ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 1,7% á þessu ári og 2,7% á því næsta í nýjustu þjóðhagsspáð Hagstofu Íslands. Einkaneysla eykst minna í ár en í fyrra og fjárfesting dregst saman um 3,6%. Á næsta ári er gert ráð fyrir að einkaneysla taki betur við sér og verði 3% en fjárfesting aukist um 14,1%. Samneysla eykst um hálft prósent á þessu ári, stendur í stað 2014 til 2015 en eykst hægt eftir það.

Spáin, sem gefin var út í dag, nær til áranna 2013 til 2018. 

Vöxtur einkaneyslu og bati á vinnumarkaði var góður á fyrri helmingi 2012 en slakari á seinni hlutanum. Á fyrri helmingi 2013 hefur vinnumarkaður styrkst talsvert en einkaneysla eykst hægt. Verðbólguhorfur hafa batnað allnokkuð en viðskiptakjör hafa versnað lítillega. Fjárfesting eykst á spátímanum að árinu 2013 undanskildu.

Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 12. apríl síðastliðinn og er ráðgert að gefa út næstu spá í nóvember 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert