Fagna því að leggja eigi Landsdóm niður

Landsdómur tekur sér sæti í gamla lestrarsalnum í Þjóðmenningarhúsinu.
Landsdómur tekur sér sæti í gamla lestrarsalnum í Þjóðmenningarhúsinu. mbl.is/Kristinn

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fagnar ályktun þings Evrópuráðsins frá því á föstudaginn og segir hana lýsa fordæmingu á pólitískum sakamálaréttarhöldum þar sem fólk er ákært fyrir pólitískar ákvarðanir eða skoðanir.

Ályktunin var samþykkt samhljóða með 86 atkvæðum, en í henni segir að halda beri pólitískri ábyrgð og refsiábyrgð aðskildum.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Geir dapurlegt að Íslandi hafi verið komið í hóp ríkja þar sem fólk sé ákært fyrir pólitískar ákvarðanir eða skoðanir. Formenn stjórnarflokkanna lýstu því yfir um helgina að rétt væri að leggja niður Landsdóm í ljósi ályktunarinnar. Kveðið er á um Landsdóm í stjórnarskrá og í lögum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert