Æðarbliki lá sem fastast á hreiðri sínu

Æðarblikinn á hreiðrinu. Mjög sjaldgæft er að þetta gerist og …
Æðarblikinn á hreiðrinu. Mjög sjaldgæft er að þetta gerist og ef til vill einsdæmi. mbl.is/Sigurður Ægisson

„Þetta er mjög sérstakt. Ég hef bara einu sinni á ævinni séð æðarblika skjótast á hreiður, og það var í nokkrar sekúndur á meðan kollan fór af.“

Þetta segir Sigurður Ægisson fuglaáhugamaður, sem náði afar sjaldgæfum myndum af æðarblika á hreiðri í æðarvarpi á Siglufirði. Örlygur Kristfinnsson, eigandi æðarvarpsins, segir fuglinn hafa legið á hreiðrinu í nokkra daga, en hann hefur aldrei séð neitt þessu líkt áður.

Blikinn lá á hreiðri með þremur eggjum sem líklega komu undan kollu af sömu tegund, en þrjú egg telst fremur lítið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert