Fordæma minnkun hvalaskoðunarsvæðis

Hvalaskoðun.
Hvalaskoðun. mbl.is/Árni Torfason

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma ákvörðun sjávarútvegsráðherra að minnka hvalaskoðunarsvæðið í Faxaflóa án samráðs við hvalaskoðunarsamtökin og Samtök ferðaþjónustunnar. Hvalaskoðun er stærsta auðlind ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu með árlega veltu upp á tæpan milljarð og skapar í umhverfi sínu hundruð starfa. Með ákvörðun sjávarútvegsráðherra er hagsmunum og framtíð greinarinnar fórnað fyrir sérhagsmuni örfárra einstaklinga sem hafa takmarkaðar tekjur af hrefnuveiðum, segir í tilkynningu frá samtökunum.

 „Í áliti nefndar um stefnumörkun í hvalveiðimálum, sem skipuð var af fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, kemur fram að meirihluti hennar telji ljóst að umfang hvalaskoðunar og þjóðhagslegt mikilvægi hennar hafi aukist á undanförnum árum og mikilvægt sé að umgjörð hvalaskoðunar og hvalveiða sé með þeim hætti að ásættanlegt teljist fyrir báðar atvinnugreinar,“ segir m.a. í tilkynningunni.

 Nefndin lagði til að griðasvæðið yrði stækkað þannig að miðað væri við beina línu frá Garðskagavita að Arnarstapa. Ákvörðun ráðherra gekk þó skemur til að fara bil beggja og kemur því ákvörðun um minnkun griðasvæðisins nú ferðaþjónustunni í opna skjöldu, enda hafa engar rannsóknir sýnt að hvalaskoðun hafi áhrif á hrefnuveiðar.

 SAF krefjast þess að hvalaskoðunarsvæðið við Faxaflóa verði nú þegar fært til fyrra horfs.

Haldið út í hvalaskoðun.
Haldið út í hvalaskoðun. Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert