Fjölskyldufaðir vann 28 milljónir

Báðir vinningshafarnir sem voru með allar tölur réttar í laugardagslottóinu eru komnir fram. Sá sem seinna gaf sig fram er fjölskyldufaðir sem að ákvað að kippa með sér einum 10 raða miða hjá N1 á Þórshöfn og reyndist sú ákvörðun heldur betur borga sig.

Hann er að vonum mjög ánægður með þessar 28 milljónir sem hann hlaut og að hans sögn munu þær koma sér mjög vel fyrir hann og fjölskyldu hans, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Sjá frétt mbl.is: 25 ára vann 28 milljónir

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert