Konurnar voru á ferðalagi

Eyðibýli í Jökulfjörðum.
Eyðibýli í Jökulfjörðum. mbl.is/Árni Sæberg

Konurnar tvær sem óttast var um í Jökulfjörðum í gær eru komnar fram. Þær voru farnar af svæðinu og voru á ferðalagi annars staðar á landinu.

Konurnar fóru með bát fyrir helgi og áttu að koma til baka á mánudag en skiluðu sér ekki. Þær fengu far með öðrum bát og héldu ferðalagi sínu áfram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert