Lífshættulegt ástand

Landspítalinn.
Landspítalinn. Morgunblaðið/Ómar

Þeir sjúklingar sem eru inniliggjandi á Landspítalanum og oftar en ekki veikastir þurfa einna mest á þjónustu geislafræðinga að halda. Mannslíf gætu því verið í hættu ef uppsagnir geislafræðinga verða að veruleika 1. ágúst næstkomandi.

Þetta segir Maríanna Garðarsdóttir, sérfræðingur á myndgreinadeild Landspítalans og formaður Félags íslenskra röntgenlækna, í Morgunblaðinu í dag. Hún bendir á að félög á borð við Orkuhúsið og Domus Medica auk myndgreiningadeilda á Selfossi og Akranesi geti tekið við einhverjum af þeim sjúklingum sem ekki munu fá aðstoð á Landspítalanum ef uppsagnirnar taka gildi.

„Ég veit samt ekki með veikustu sjúklingana eins og t.d. gjörgæslusjúklinga sem eru fluttir sofandi í öndunarvél frá gjörgæslu og niður á röntgendeild, þeir verða ekkert fluttir á milli húsa til að fara í röntgenrannsóknir,“ segir Maríanna. „Það gleymist oft að inniliggjandi sjúklingar, sem eru veikastir, eru þeir sem þurfa mest á þessari þjónustu að halda,“ bætir hún við.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert