Frakkarnir hrósa morgunverðinum

Snemma í sumar opnaði Hótel Siglunes, nýtt og glæsilegt 19 herbergja hótel á Siglufirði, og reksturinn hefur gengið vonum framar að sögn eiganda þess Ástu Júlíu Kristjánsdóttur og hún segir að sér hafi þótt sérlega vænt um það þegar franskir gestir hótelsins hrósuðu morgunverðarhlaðborðinu.

Ásta Júlía segist hafa fundið vel fyrir þeim fjölda ferðamanna sem staddir eru á landinu og margir eigi í erfiðleikum með að finna sér gistingu. Hótelið er skemmtilega innréttað öll herbergi eru ólík og húsbúnaðurinn kemur víða að en Ásta Júlía segist hafa auglýst eftir húsmunum í bænum og fengið góð viðbrögð margir hafi gefið húsgögn sem eigi sér skemmtilega sögu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert