Ofmeti ekki gengisdóma

mbl.is

Þeir sem tóku gengislán fyrir efnahagshrunið og vænta þess að lánin verði endurreiknuð með neikvæðum raunvöxtum aftur í tímann byggja það á óraunhæfum kröfum.

Þetta er skoðun Helga Sigurðssonar hæstaréttarlögmanns sem vísar til umtalaðs gengisdóms fyrir Hæstarétti í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Var niðurstaða Hæstaréttar sú að sveitarfélagið skuldaði tæpar 129 milljónir, málalok sem Helgi segir að hafi verið ígildi þess að umrætt lán hafi borið neikvæða raunvexti.

Aldrei hafi hins vegar reynt á þessa aðferð við að reikna út eftirstöðvar, enda hafi ágreiningurinn í þessu dómsmáli öðrum þræði snúist um hvort víkja ætti meginreglu um fullar efndir til hliðar. Því sé fordæmisgildi þessa máls lítið.

Þá segir Helgi í fréttaskýringu um mál þessi í Morgumnblaðinu í dag, að þessi niðurstaða sé í ósamræmi við dóm Hæstaréttar í máli Landsbankans gegn Plastiðjunni hinn 30. maí sl., enda hafi fjárkröfu fyrirtækisins gegn bankanum verið mótmælt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert