Smíðar 103 þrepa stiga á Grábrók

Elsta skólahús Háskólans á Bifröst er í Grábrókarhrauni og í …
Elsta skólahús Háskólans á Bifröst er í Grábrókarhrauni og í baksýn má greina Hraunsnefsöxl og Grábrók. mbl.is/Helgi Bjarnason

Umhverfisstofnun hefur nú samið um smíði nýs 103 þrepa stiga á Grábrók og mun smíðin hefjast í haust. Þetta verður verðug viðbót við þá stiga sem fyrir eru á svæðinu og ferðamenn láta mjög vel af.

Byggingarfyrirtæki Eiríks J. Ingólfssonar hefur undanfarin ár smíðað fyrir Borgarbyggð alla stigana sem liggja upp á Grábrók. Auk þess hefur sveitarfélagið í samráði við Umhverfisstofnun látið laga stíga, hanna skilti og loka fyrir óæskilegar gönguleiðir með togvír. Þær lokanir hafa gefist mjög vel og er merkjanlegur árangur af þeim. Heildarkostnaður, við þessi verk, hefur verið rúmar 15 milljónir. Þar af hefur Borgarbyggð fengið í styrk frá Ferðamálastofu um 8 milljónir.

Frá árinu 2010 hefur Umhverfisstofnun verið með hópa sjálfboðaliða í vinnu við Grábrók á hverju ári, undir stjórn landvarðar sem hér starfar á sumrin, við að raka í óæskilega stíga, setja upp skilti, bæta mosa í sár, tína rusl, bera á stigana og yfirfara lokanir og fjölga þeim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert