Einkaflugmenn þurfa leyfi til að fljúga með farþega

Dæmi eru um að einkaflugmenn sem ekki hafa flugrekstrarleyfi hafi flogið með farþega gegn greiðslu. Samgöngustofa hefur sent frá sér tilkynningu þar sem minnt er á þetta er brot á reglum.

Samgöngustofa mun sinna hefðbundnu eftirliti með loftflutningum um verslunarmannahelgina en þau mál eru yfirleitt til mikillar fyrirmyndar hjá flugrekstaraðilum og flugmönnum. Á undanförnum árum hafa þó verið einstaka dæmi um að einkaflugmenn sem ekki hafa flugrekstrarleyfi hafi flogið með farþega gegn greiðslu. Til að fljúga með farþega gegn greiðslu þarf flugrekstrarleyfi en því fylgja ítarlegri öryggiskröfur en gilda í einkaflugi.

Við eftirlit er áhersla lögð á að flugmenn tryggi að loftför séu starfrækt eðlilega. Markmiðið er að flug gangi snurðulaust fyrir sig og að fyllsta öryggis sé gætt.

Nánari upplýsingar um þá aðila sem hafa flugrekstrarleyfi er hægt að nálgast á heimasíðu Samgöngustofu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert