Sigmundur Davíð í sviðsljósinu í Vesturheimi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ásamt eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ásamt eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, og Peter Bjornsson, viðskiptaráðherra Manitoba. mbl.is/Steinþór

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra kom til Winnipeg í Kanada í nótt og heiðraði  minningu Vestur-Íslendinga frá Manitoba, sem voru í hernum eða friðargæslusveitum, nú eftir hádegið að staðartíma.

Forsætisráðherra lagði blómsveig að minnisvarða um fallna hermenn og friðargæsluliða frá Manitoba, en á meðal hinna látnu frá 1914 til nútímans eru margir af íslenskum ættum.

Fréttamenn frá fjölmiðlum í Winnipeg töluðu við forsætisráðherra í morgun og hann hitti Peter Bjornson, viðskiptaráðherra Manitoba, í hádeginu. 

Sigmundur Davíð verður heiðursgestur á Íslendingahátíðinni í Mountain í Norður-Dakota í Bandaríkjunum á morgun og heldur síðan aftur til Manitoba til að taka þátt í Íslendingadagshátíðinni á Gimli um helgina.

Hátíðin í Mountain fer nú fram í 114. sinn en Íslendingadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 1890 og skemmtunin þar er nú haldin í 124. sinn. 135 ár eru frá því Íslendingar settust fyrst að í Norður-Dakota, en fyrsti hópur Íslendinga kom til Winnipeg og síðar þar sem nú er Gimli í október 1875. 

Á vef Winnipeg Free Presssjá viðtal við Sigmund Davíð er hann heimsótti Mannréttindasafnið í Kanada.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert