Þyrla sótti slasaðan ferðamann á Langjökul

TF-GNÁ
TF-GNÁ Af vef Landhelgisgæslunnar

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, lenti við Borgarspítalann á sjötta tímanum í dag með slasaða konu sem sótt var upp á Langjökul.

Konan er erlendur ferðamaður og féll hún af vélsleða þar sem hún var í skipulagðri vélsleðaferð á jöklinum. Hlaut hún einhverja bakáverka og í samráði við lækni var talið öruggast að flytja hana með þyrlu á Landspítalann. Hún er ekki talin vera alvarlega slösuð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert