Nýr kampavínsklúbbur að Hverfisgötu

Húsnæði Stígamóta að Hverfisgötu 115
Húsnæði Stígamóta að Hverfisgötu 115 mbl.is/Árni Sæberg

Starfskonur Stígamóta hafa fundið nýja fjáröflunarleið og ætla að opna kampavínsklúbb á Stígamótum á fimmtudagskvöldið.

Í tilkynningu frá Stígamótum kemur fram að vönduð dagskrá verður í boði, en hún mun öll fara fram afsíðis. Gestum býðst að kaupa sér tíu mínútna einkaatriði fyrir aðeins 20.000 krónur og verður boðið upp á frítt kampavín eins og hver getur í sig látið á meðan atriðin fara fram.

Boðið upp á persónulegt og skemmtilegt spjall um nauðganir

„Þar sem um opnunarhátíð er að ræða munum við bjóða sérstaklega borgarstjóranum í Reykjavík, lögreglustjóranum, ráðherrum, þingmönnum og borgarfulltrúum á meðan húsrúm leyfir.

Föngulegar konur munu bjóða upp á spjall , söng og jafnvel dans, á íslensku, ensku og á norðurlandamálunum og má geta þess sérstaklega að sumar þeirra eru skráðar í keppnina Ungfrú Ísland 2013.

Þannig mun dr. Guðrún Jónsdóttir eldri fræða fólk um sögu Stígamóta á tíu mínútum og taka nokkur dansspor í leiðinni ef stemning er fyrir því. Þórunn Þórarinsdóttir mun kveða rímur, en hún hefur verið í kór í mörg ár og er með góða rödd.

Theodóra treystir sér til þess að kenna fólki að prjóna lopaslá á tíu mínútum ef fólk drekkur ekki því meira. Anna Þóra Kristinsdóttir sálfræðingur mun syngja um sjálfshjálparhópa fyrir konur sem stundað hafa vændi. Anna Bentína býður upp á persónulegt og skemmtilegt spjall um nauðganir og þær Guðný og Áslaug munu þylja tölur um aðsókn á Stígamótum undanfarin ár og komast yfir ótrúlega mikið efni á þessum tíma.

Sólveig verður með létta dagskrá um barnaverndarmál tengd vændi. Ýmislegt fleira verður í boði og mun Halldóra Halldórsdóttir verða tímavörður. Björg Gísladóttir er þokkastýra klúbbsins og mun skapa huggulega stemningu og jafnvel flytja ljóð.

Guðrún Jónsdóttir mun taka á móti gestum og mun geta boðið upp á ýmis sértilboð. Í kampavínsklúbbnum tökum við jafnt á móti konum og körlum og munum leitast við að láta fólki líða sem best,“ segir í tilkynningu frá Stígamótum.

Stígamót stefna að því að setja á laggirnar kampavínsklúbb í …
Stígamót stefna að því að setja á laggirnar kampavínsklúbb í húsnæði sínu að Hverfisgötu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert