Ekki fengið stöðu ennþá

Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga.
Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga.

„Það er allavega ekki laus staða fyrir mig á myndgreiningu,“ segir Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga.

Morgunblaðið greindi frá því um helgina að hún hefði farið í atvinnuviðtal á Landspítalanum í síðustu viku. Í þessari viku fékk hún þau svör að ekki væri laus staða fyrir hana á sviðinu sem hún starfaði við áður, myndgreiningarsviði.

„Ég sendi inn opna atvinnuumsókn og það á ennþá eftir að koma í ljós hvernig þetta endar. Það er núna verið að athuga aðra möguleika. Það skýrist væntanlega eitthvað eftir helgi,“ segir Katrín í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert