Fá 30% fyrir frjálsar rækjuveiðar

Veiðar á úthafsrækju voru gefnar frjálsar frá og með upphafi …
Veiðar á úthafsrækju voru gefnar frjálsar frá og með upphafi fiskveiðiársins 2010/ 2011 en áður höfðu þær stýrst af aflahlutdeildarkerfinu. mbl.is

„Við erum verulega ósáttir með þessa ákvörðun ráðherra og þetta minnisblað sem lagt var fram í gær,“ segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir hann, að með því að úthluta rækju ekki samkvæmt aflahlutdeild fyrir komandi ár sé verið að brjóta lög.

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í gær að vinna væri að hefjast í ráðuneytinu við nýtt frumvarp til laga sem mun breyta stjórn veiða á úthafsrækju. Samkvæmt því verður tekið tillit til veiðireynslu síðustu þriggja ára, þegar veiðar voru ótakmarkaðar.

Veiðar voru gefnar frjálsar 2010 en stjórnvöld hyggjast koma á veiðistjórn á nýjan leik en úthluta samkvæmt nýjum reglum. Þeir sem áttu aflahlutdeild áður en veiðar voru gefnar frjálsar munu fá 70% af kvótanum í úthafsrækju en þeir sem hafa stundað veiðar undanfarin þrjú ár munu fá 30%. Veiðar á komandi fiskveiðiári eiga ekki að telja við ákvörðun veiðireynslu en veiðar verða frjálsar upp að tilteknu magni þar til frumvarpið verður samþykkt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert