Kári Steinn og Helen fyrst í mark

Keppendur streyma í mark í hálfmaraþoninu í morgun.
Keppendur streyma í mark í hálfmaraþoninu í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Hlaupagarpurinn Kári Steinn Karlsson sigraði í hálfmaraþoni í karlaflokki í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer í dag en hann hljóp á tímanum 1:07:40. Í öðru sæti var Korablev Denis frá Rússlandi á tímanum 1:12:51 og í því þriðja Bandaríkjamaðurinn Javier Rodriguez á tímanum 1:17:11.

Helen Ólafsdóttir var fyrst í mark í kvennaflokki á tímanum 1:22:57 og Martha Ernstsdóttir í öðru sæti á 1:24:04. Í þriðja sæti var Íris Anna Skúladóttir á tímanum 1:25:18.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert