Stúdentar fagna í kvöld

„Við erum ótrúlega hamingjusöm í dag. Stúdentar hafa unnið sigur,“ sagði María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs, eftir að kveðinn var upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þess efnis að stjórn Lánasjóðs Íslenskra námsmanna var óheimilt að breyta reglum fyrir skólaárið 2013 til 2014.

Hún sagðist ekki geta spáð fyrir um hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar og ætlar í raun ekki að hugsa um það þessa stundina heldur nota daginn í dag til að fagna sigri. Þá gerir hún allt eins ráð fyrir því að stúdentar fjölmenni á Stúdentakjallarann í kvöld til að fagna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert