Síðasta ferð Herjólfs fellur niður

mbl.is/GSH

Vegna ölduhæðar, þungrar öldu og strauma utan við hafnargarðanna fellur síðastað ferð Herjólfs niður frá Vestmannaeyjum kl. 20:30 og frá Landeyjahöfn kl. 22:00, að því er fram kemur í tilkynningu.

Varðandi morgundaginn mun verða send út tilkynning kl 07:00 ef gera þarf breytingu á áætlun, að öðrum kosti verður siglt skv. áætlun.

Nánari upplýsingar í síma 481-2800.

Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RUV. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert