Endurskoðar lög um almannatryggingar

Eygló Harðardóttir.
Eygló Harðardóttir.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að skipa nefnd til að ljúka heildarendurskoðun almannatrygginga og gera drög að frumvarpi til nýrra laga um lífeyrisréttindi. Miðað er við að starfsgetumat komi í stað örorkumats  og að skoðaðir verði kostir og gallar þess að auka möguleika fólks til sveigjanlegra starfsloka ásamt einföldun á lífeyriskerfinu. 

Ákvörðun ráðherra um að skipa nefnd um heildarendurskoðun laga um almannatryggingar hefur verið kynnt á fundi ríkisstjórnar. Verkefni hennar verður tvíþætt og felst annars vegar í innleiðingu starfsgetumats í stað örorkumats, hins vegar er nefndinni ætlað að fjalla um fjárhæðir lífeyrisgreiðslna til aldraðra og öryrkja og skila drögum að frumvarpi að nýjum lögum um lífeyrisréttindi almannatrygginga.

Í mars 2007 kom út skýrsla nefndar um endurskoðun örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar með stóraukna áherslu á endurhæfingarúrræði að leiðarljósi, til að fyrirbyggja ótímabæra starfsorku. Þar er lagt til að breytingar verði gerðar á skilgreiningu á örorku og rétti til örorkulífeyris og viðmiðanir um örorkumat í almannatryggingakerfinu og lífeyrissjóðakerfinu verði samræmdar. Einnig er lagt til að skilið verði milli mats á þörf einstaklingsins fyrir stoðþjónustu og mats á getu hans til að afla tekna.

Endurskoðun bóta og sveigjanleg starfslok

Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að nefndinni sé einnig ætlað að fjalla um fjárhæðir lífeyrisgreiðslna til aldraðra og öryrkja. Byggt verður á þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram í tengslum við heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins. Fjárhæðir lífeyrisgreiðslna verða metnar metnar með hliðsjón af almennri launaþróun og þróun lægstu launa og möguleikar til hækkunar bóta til lengri tíma litið kannaðir með tilliti til stöðu ríkissjóðs. Nefndinni verður einnig falið að kanna kosti og galla þess að hækka lífeyrisaldur í áföngum með hugsanlegum breytingum á ávinnslu réttinda ásamt því að auka möguleika fólks til sveigjanlegra starfsloka. 

Lögð er áhersla á mikilvægi þess að nefndin líti í ríkum mæli til samspils almannatrygginga og lífeyrissjóða og að þessar tvær meginstoðir lífeyristrygginga vinni vel saman. Einnig er reiknað með að höfð verði hliðsjón af fyrirkomulagi lífeyrismála í Evrópu og reynslu af breytingum á lífeyristryggingakerfum þeirra þjóða á undanförnum árum.

Nefndinni verður falið að skila félags- og húsnæðismálaráðherra áfangaskýrslu fyrir næstu áramót. Miðað er við að hún ljúki störfum fyrir 1. júní 2014 og skili þá drögum að frumvarpi um ný lög um lífeyrisréttindi almannatrygginga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert