Gæslan miðaði síma mannsins út

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Við leit að fjallgöngumanni í gærkvöldi notaði Landhelgisgæslan GSM miðunarbúnað til að staðsetja síma mannsins. Með búnaðnum er hægt að staðsetja þann týnda með töluverðri nákvæmni á skömmum tíma.

Landhelgisgæslu Íslands barst í gærkvöldi beiðni um aðstoð þyrlu við leit að manni sem var villtur á Hrútsfjalli milli Svínafellsjökuls og Skaftafellsjökuls. Veður var slæmt á svæðinu, um fimm metra skyggni og rigning á köflum.  Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA var kölluð út kl. 19:56  og var hún komin á staðinn kl. 22:08. Um borð í þyrlunni var GSM miðunarbúnaður til að staðsetja síma mannsins.  Þyrlan hafði kl. 23:19 miðað út staðsetningu símans og þar með þrengt leitarsvæði björgunarsveitarmanna. Þar sem ekki voru skilyrði fyrir þyrluna til leitar var þyrlunni lent og beðið átekta.  Klukkan 01:15 bárust upplýsingar frá björgunarsveitarmönnum um að maðurinn hefði fundist á svæðinu sem þyrlan hafði miðað út eða á Hafrafelli. Maðurinn var kaldur og hrakinn og var hann fluttur með björgunarsveitarmönnum til byggða.

Landhelgisgæslan hefur komið að þróun og prófunum miðunarbúnaðarins en hugbúnaðarfyrirtækið Rögg ehf hefur borið hita og þunga af þróun kerfisins. Einnig hefur Landsvirkjun komið að þróuninni en hugmyndina fékk Óskar Valtýsson fjarskiptastjóri hjá Landsvirkjun þegar hann fylgdist með umfangsmikilli leit fyrir tveimur árum.

Skilyrði fyrir notkun tækisins er að sá týndi sé með kveikt á GSM síma. Um er að ræða færanlega GSM móðurstöð með fylgibúnaði sem staðsett er í þyrlu. Með búnaðnum verður hægt að staðsetja þann týnda með töluverðri nákvæmni á skömmum tíma. Flogið er með stöðina um leitarsvæðið og búin til GSM-þjónusta til þess að vekja símann, ef kveikt er á honum. Hefur hann sjálfkrafa samband við GSM-kerfið um borð í þyrlunni. Er síminn miðaður út og eru þá leitaraðilar komnir með staðsetningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert