Ekki nóg að eiga sæti við borðið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, á tali við Jeff Randall á …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, á tali við Jeff Randall á Sky-sjónvarpsstöðinni. Skjáskot af Sky.com

„Ef við værum í Evrópusambandinu hefðum við vissulega sæti við borðið. En eins og við höfum orðið vitni að á undanförnum árum hafa lítil ríki ekki mikið að segja um niðurstöðuna þó þau eigi sæti við borðið. Við stæðum þá frammi fyrir því að þurfa að fylgja ákvörðunum sem teknar væru í Brussel varðandi okkar mikilvægustu náttúruauðlindir.“

Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í samtali við Jeff Randall á Sky-sjónvarpsstöðinni fyrir helgi. Hann tók sem dæmi að Ísland ætti í fiskveiðideilu við Evrópusambandið um makríl og hefðu Íslendingar verið þar innanborðs hefði sambandið einfaldlega farið sínu fram. Þrátt fyrir galla íslensku krónunnar hefði hún leikið lykilhlutverk í því að þoka efnahagslífinu í rétta átt og stuðlað að auknum útflutningi og ferðaþjónustu. Þannig hefði ítrekað sýnt sig að það hefði verið lykilatriði við að koma Íslandi út úr krísunni að fara með stjórn eigin mála og geta tekið ákvarðanir úr frá íslenskum hagsmunum. Samtímis hefðu vandamál evrusvæðisins ekki gert það eftirsóknarvert að verða hluti þess.

„Það sem við höfum orðið vitni að undanfarin ár á meðan þessi efnahagskrísa hefur gengið yfir er að ríkjum getur gengið mjög vel utan Evrópusambandsins og ríki geta lent í miklum erfiðleikum með aðstoð sambandsins. En þess utan vil ég leggja áherslu á að við viljum vitanlega halda nánu sambandi við Evrópusambandið og evrópsk ríki. Við erum að auka viðveru okkar í Brussel og viljum vinna með sambandinu varðandi sjávarútvegsmál og málefni Norðurslóða en ég tel að við getum gert það betur utan þess,“ sagði Sigmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert