Herflugvél á Akureyri

Rafstöðin og flugvélin í bakgrunni.
Rafstöðin og flugvélin í bakgrunni. mbl.is/Þorgeir Baldursson

C-17 flugvél frá bandaríska hernum hafði stutta viðkomu á Akureyri í dag. Vélin flutti þangað búnað vegna æfingar hersins og loftrýmisgæslu á Akureyri í nóvember.

Farmur vélarinnar var rafstöð, en sú saga var á kreiki að um væri að ræða sprengiefni sem nota ætti í Vaðlaheiðargöngum. Fjölmargar stofnanir ríkisins stóðu í þeirri meiningu. Búnaðurinn er þó með öllu hættulaus.

Samkvæmt flugmálayfirvöldum á Akureyri verða þrír menn sem komu með vélinni hér á landi til 10. desember, en vélin fór aftur til Ramstein í Þýskalandi í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert