Gegn umskurði ungra drengja

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Morgunblaðið/Eggert

Í gær skrifuðu umboðsmenn barna á Norðurlöndum og ýmsir heilbrigðisstarfsmenn undir samnorræna yfirlýsingu gegn umskurði ungra drengja. Þeir sem skrifa undir telja brýnt að vinna að því að banna umskurð á ungum drengjum.

Mikilvægt er að virða sjálfsákvörðunarrétt barna og banna umskurð á drengjum nema í þeim tilvikum sem drengur, sem hefur náð nægilegum aldri og þroska til að skilja hvað felst í aðgerðinni, veitir samþykki sitt. Vonast er til þess að umrædd yfirlýsing verði til þess að málefnaleg umræða eigi sér stað á milli allra þeirra sem málið varðar.

Að lokum eru ríkisstjórnir á öllum Norðurlöndum hvattar til þess að stuðla að fræðslu um  réttindi barna og þá áhættu sem fylgir umskurði. Ennfremur eru þær hvattar þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja að drengir fái sjálfir að ákveða hvort þeir vilji láta umskera sig þegar þeir hafa aldur og þroska til.

„Þó að umskurður af trúarlegum og menningarlegum ástæðum hafi almennt ekki tíðkast hér á landi eru dæmi um að slíkar aðgerðir hafi verið framkvæmdar. Ég vona því að þessi samnorræna yfirlýsing verði tekin alvarlega og gripið verði  til nauðsynlegra aðgerða til þess að tryggja réttindi barna að þessu leyti,“ segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.

„Ég geri mér grein fyrir því að það verða ekki allir sáttir við þessa yfirlýsingu  okkar  en ég vil mjög gjarnan taka þátt í málefnalegum umræðum um  þessi  mál. Í gegnum tíðina hafa verið aflagar ýmsar hefðir sem eru skaðlegar börnum en þóttu sjálfsagðar hér áður fyrr. Ég vona að við getum náð sátt um það að réttindi barna eiga alltaf að ganga framar rétti fullorðinna til að viðhalda trúarlegum og menningarlegum hefðum.“

Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, Ingólfur Einarsson formaður félags  barnalækna á Íslandi, Þráinn Rósmundsson yfirlæknir barnaskurðlækninga á Barnaspítala  Hringsins og fulltrúi Barnaskurðlæknafélags Íslands og Ragnar Bjarnason prófessor og  yfirlæknir barnalækninga á Barnaspítala Hringsins skrifuðu undir yfirlýsinguna fyrir hönd Íslands.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert