Um þúsund skjálftar mælst

Jarðskjálftahrina sem hófst úti fyrir mynni Eyjafjarðar að kvöldi 24. …
Jarðskjálftahrina sem hófst úti fyrir mynni Eyjafjarðar að kvöldi 24. september.

Jarðskjálftahrina sem hófst úti fyrir mynni Eyjafjarðar að kvöldi 24. september stendur enn og hafa um eitt þúsund skjálftar mælst. Í gærkvöldi klukkan 19:40 varð skjálfti 3,8 að stærð og er það stærsti skjálfti sem hefur mælst í hrinunni.

Flestir skjálftanna hafa verið innan við þrjú stig en nokkrir stærri sem hafa fundist á Siglufirði og Ólafsfirði.

Í fyrrahaust varð skjálftahrina á svipuðum slóðum og mældust þá  tveir skjálftar yfir fimm stigum, annar 5,2 og hinn 5,6 þann 21. október. Virkasta svæðið í fyrra var norðvestan og suðaustan við það svæði sem skjálftarnir raða sér nú á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert