Bar ekki að með saknæmum hætti

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Búið er að bera kennsl á lík konu sem fannst í Reykjavíkurhöfn í gær að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. Hann segir að dauða hennar hafi ekki borið að með saknæmum hætti. 

Líkið fannst við miðbakkann fyrir framan Tollhúsið í gærmorgun. 

Lögreglan veitir ekki nánari upplýsingar um málið, en rannsókn þess er í hefbundnum farvegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert