Hundruð föst á Fjarðarheiði

mbl.is/Ómar

Hundruð ferðamanna hafa setið föst á Fjarðarheiði frá því klukkan sex í kvöld samkvæmt tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Björgunarsveitir frá Egilsstöðum og Seyðisfirði vinna nú að því að selflytja fólkið til Seyðisfjarðar.

Fram kemur í tilkynningunni að um sé að ræða ferðamenn sem komu með Norrænu til Seyðisfjarðar og voru í dagsferð á Héraði. Þeir voru á fjórum rútum, samtals hátt í 300 manns. Mikil hálka var á Fjarðarheiði og komust bílarnir því ekki niður brekkuna til Seyðisfjarðar á bakaleiðinni. Við flutningana eru notaðir allar tiltækar bifreiðar björgunarsveitanna sem og tvær minni rútur frá Seyðisfirði.

„Engin slys hafa orðið á fólki en hluti þess var verulega skelkaður. Því voru félagar úr Rauða krossi Íslands boðaðir í Norrænu þar sem þeir veita fólkinu áfallahjálp. Einni rútunni var ekið til Seyðisfjarðar eftir að búið var að losa farþegana úr henni en hinar þrjár eru enn á heiðinni. Búist er við að verkinu ljúki í kringum miðnætti í kvöld.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert