Starfsmenn krafðir um endurgreiðslu launa

Verslun Bauhaus.
Verslun Bauhaus. mbl.is/Styrmir Kári

Fjölmargir núverandi og fyrrverandi starfsmenn Bauhaus hafa á síðustu vikum fengið kröfu frá fyrirtækinu um endurgreiðslu á ofgreiddum launum en um er að ræða launagreiðslur frá því í apríl, maí, júní og júlí árið 2012, eða fyrir rúmu ári. Nokkrir starfsmannanna leituðu til stéttarfélags síns, VR, til að fá úr því skorið hvort fyrirtækið ætti endurkröfu á þá.

Þetta kemur fram í frétt á vef VR.

Samkvæmt meginreglu vinnuréttar ber vinnuveitandi ábyrgð á greiðslu launa, segir í frétt VR. Ofgreidd laun verða ekki endurkrafin nema um augljósa villu sé að ræða við launaútreikning sem hægt er að leiðrétta strax og varðar verulegar fjárhæðir. Þessi regla, sem hefur verið staðfest með dómum, byggir á því meginsjónarmiði að laun séu ætluð til framfærslu starfsmanns og hann megi ætla að þær greiðslur sem inntar eru af hendi séu honum til ráðstöfunar. Laun móttekin í góðri trú eru því almennt ekki endurkræf.

Það er afstaða VR að þessi meginregla eigi við hvað þessi mál varðar og eru mistök við útreikning launanna því alfarið á ábyrgð Bauhaus. VR hefur þegar krafist þess skriflega að Bauhaus falli frá kröfum um endurgreiðslu launa. Fyrirtækið hefur hafnað því og líklegt verður að telja að útkljá verði í málum þessum fyrir dómstólum.

Bauhaus hafnar ósk um lista starfsmanna

VR óskaði eftir því við Bauhaus að fá afhentan lista yfir þá starfsmenn fyrirtækisins sem málið varðar og eru félagsmenn í VR. Markmiðið var að upplýsa viðkomandi félagsmenn um stöðuna og benda þeim á réttindi þeirra. Bauhaus hafnaði þessari ósk og verður að segja að sú afstaða fyrirtækisins kom á óvart. VR hefur leitast við að eiga uppbyggileg samskipti við fyrirtæki á vinnumarkaði með hagsmuni starfsmannanna að leiðarljósi. Í þessu tilviki verður ekki hjá því komist að upplýsa um stöðu málsins með þessum hætti, þar sem ná þarf til allra aðila er málið varðar, segir í frétt VR.

VR vill hvetja starfsmenn Bauhaus sem hafa fengið kröfu um endurgreiðslu vegna ofgreiddra launa eða orðið varir við að dregið hafi verið af launum þeirra til þess að hafa samband við kjarasvið félagsins í síma 510 1700 eða með því að senda erindi til vr@vr.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert