Leggja fram lögbannskröfu gegn Dróma

heimilin.is

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) hafa lagt fram lögbannsbeiðni hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem þess er krafist að lagt verði lögbann við innheimtu Dróma hf. á peningakröfum. Þess er krafist að lögbanni verði ekki aflétt fyrr en Drómi hafi sýnt að fyrirtækið hafi heimild til að stunda innheimtu í atvinnuskyni, segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.

HH segist hafa heimild til að leita lögbanns til verndar heildarhagsmunum neytenda (á grundvelli laga nr. 141/2001) og nýti því nú þá heimild til að freista þess að stöðva innheimtu Dróma. Samtökin segja að allt frá stofnun fyrirtækisins í mars 2009 hafi Drómi stundað innheimtu peningakrafna. Uppruna krafnanna megi í meginatriðum rekja til þriggja aðila, þ.e. SPRON, Frjálsa fjárfestingarbankans (nú Frjálsa hf.) og Hildu ehf. (dótturfélag Eignasafns Seðlabanka Íslands).

Hagsmunasamtökin segja í tilkynningu að nú liggi fyrir staðfesting Fjármálaeftirlitsins (FME) á því að Drómi hafi ekki innheimtuleyfi. Hinn 12. september síðastliðinn hafi Fjármálaeftirlitið birt tilkynningu á vefsvæði sínu þar sem áréttað sé að Drómi sé ekki með starfsleyfi frá FME, en að um sé að ræða eignarhaldsfélag sem stýrt sé af slitastjórn SPRON (samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hinn 21. mars 2009).

„Samkvæmt innheimtulögum (nr. 95/2008) er óheimilt að stunda innheimtu fyrir aðra án þess að hafa innheimtuleyfi. Þar af leiðandi telja samtökin að Dróma hljóti að vera og hafa verið óheimilt að stunda innheimtu fyrir Hildu ehf., og jafnframt fyrir Frjálsa fjárfestingarbankann  og SPRON  í þeim tilvikum þar sem ekkert liggur fyrir um með hvaða hætti fyrirtækið hafi öðlast þær kröfur sem um ræðir, enda sé þá um innheimtu fyrir þriðja aðila að ræða,“ segir í tilkynningu Hagsmunasamtaka heimilanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert